Nýjar leiðir !!!

Hugmynd til að draga úr vægi verðtryggingar:  http://gvald.blog.is/blog/gvald/entry/511170


mbl.is Hugsanleg vaxtalækkun á íbúðalánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Gylfi Guðmundsson

Komdu sæll gamli félagi G. Vald.

Í mínu hugarskoti hefur búið um langan tíma sú hugmynd að taka aftur upp kerfið sem var áður en vísitölutengingin kom til. Þá var vöxtum skipt í tvennt, í verðbótaþátt vaxta sem lagðist við höfuðstól og svo vaxtahluta sem voru greiddir vextir.

Á þessum tíma voru vextir ákvarðaðir af Seðlabanka og stjórnvöldum fyrir bankakerfið í heild. Hins vegar fylgdi sá böggul skammrifi að þessir aðilar lögðu ekki í að hækka vexti þegar verðbólgan fór af stað því það var erfið og pólitískt viðkvæm ákvörðun. Þess vegna losuðu menn sig við þann kaleik með því að vísitölutengja vextina og skapa þannig raunvaxtaumhverfi í efnahagslífinu.

Nú er hins vegar orðið langt um liðið síðan vextir voru gefnir frjálsir svo ekki þarf að viðhalda vísitölunni til að hafa raunvaxtaumhverfi. Hins vegar er vístalan nú fyrst og fremst til skuldajöfnunar í mikilli verðbólgu og hávaxtaumhverfi. Sjálfvirkni vísitölunnar er hins vegar mikill bölvaldur.

Þá er ég aftur kominn að upphafinu. Með því að láta nafnvexti ákvarða vaxtastigið en hafa síðan verðbótaþátt/skuldajöfnunarhluta vaxta sem legðist við höfuðstól, sem væri ekki beintengdur vísitölum mætti slíta á sjálfvirknina.

Verðbótaþáttin gætu bankar ákveðið á td.  þriggja- til hálfsársfresti og þyrftu ekki nema að takmörkuðu leiti að horfa til verðbólgu á hverjum tíma.

Með þessu formi væri komið á nafnvaxtaumhverfi að verulegu leiti, skuldajafnað að hluta gagnvart verðbólgu og slíta á sjálfvirkni vísitölunnar.

Þetta fyrirkomulag væri hægt að hugsa sér sem öflugan millileik til að losna að fullu út úr vístölutengingunum.

Með kveðju: Guðmundur Gylfi Guðmundsson

Ps: Það er spurning hvort svona lán eða skuldabréfaform mætti taka upp án lagabreytinga?

Guðmundur Gylfi Guðmundsson, 18.4.2008 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband