Ragnar Reykás

"Taki tryggingarsjóður hinsvegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið:  Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála"

Þetta er orðrétt upp úr blaðagrein núverandi fjármálaráðherra í Morgunblaðinu 24 janúar síðast liðinn.

Nú heitir þetta stórkostlegur árangur í samningum við Breta og Hollendinga.

Hver haldið þið að sé fyrirmyndin að Ragnari Reykás ? 


mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Það sem ég skil ekki er að hvernig er hægt að semja um eitthvað sem er ekki á ábyrgð Íslands, Bretar settu jú hryðjuverkalög á Landsbankann, frystu alla eigur og yfirtóku bankann í Bretlandi og þá hefði ég haldið að ábyrgðin væri þeirra þar sem þetta er jú eignarupptaka Breta á bankanum og það á við bæði skuldir og eignir, alveg furðulegt að bjóðast til að borga eitthvað sem okkur varðar ekkert um.

Sævar Einarsson, 5.6.2009 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband