Skerða ekki vaxtabætur !!!!!
12.12.2008 | 13:26
Utanríkisráðherra gefur til kynna að til umræðu hafi verið í ríkisstjórn að skerða vaxtabætur. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að ríkisstjórnin er í engu sambandi við fólkið í landinu. Það berast fréttir af því að sífellt fleiri leiti sér aðstoðar vegna bágrar stöðu. Þetta á við um bæði þá sem misst hafa vinnu og svo hina sem eru í vinnu en á lágum launum.
Fólk á í erfiðleikum með að standa í skilum og halda húsnæði. Þá kemur jafnvel upp sú staða að ekki er til fyrir mat og þá eru tekin þung skref til að leita sér aðstoðar. Á sama tíma og fréttir berast af bágri stöðu einstaklinga og fjölskyldna, sem má annaðhvort rekja til atvinnumissis eða stórhækkaðra afborganna á lánum, ræðir ríkisstjórnin í alvöru að lækka vaxtabætur.
Vakin hefur verið athygli á því að Norðurlöndin telji að stærstu mistökin sem þau gerðu í bankakreppunni fyrir 15 árum voru að láta allt of mörg heimili fara í gjaldþrot. Þrátt fyrir þessar viðvaranir gerir ríkisstjórnin nákvæmlega ekkert til að styðja heimilin og leggur frekar á auknar álögur sem koma sér illa fyrir atvinnulífið og skila sér beint í buddu launafólks. Ekki mátti það nú við fleiri áföllum.
Boðaður er niðurskurður á mörgum stöðum í velferðarkerfinu en blessaður utanríkisráðherrann hann sker ekkert niður, heldur sínu og dregur aðeins úr vextinum en sker ekkert niður.
Eru þetta trúverðug skilaboð og svo er hún hissa á forseta ASÍ.
Er ekki komin tími til að tengja ?
Hátekjuskattur bara táknrænn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.