Þöggun

Samviska Samfylkingarinnar er kannski að vakna.  Nú er bjallan notuð til að þess að komast hjá því að heyra óþægilegar staðreyndir málsins.    Sem betur fer er forseti Alþingis ekki í stöðu til að loka vefsíðum og taka gsm símakerfið úr sambandi eins og forseti Íran, en tilburðirnir eru af sama meiði.
mbl.is Einleikur forseta á bjöllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hvað áttu við?

Mér finnst þessi gagnrýni vera stormur í vatnsglasi.

Var það ekki Framsóknarflokkurinn sem stóð lengi fyrir því að vera móti að gera fjármál flokkanna opinber hérna um árið? Þá voru ýms mál á ferðinni sem færðu þáverandi stjórnarflokkum tugi ef ekki hundruði milljóna í kosningasjóði. Var það fyrirgreiðsla til þeirra eða jafnvel kannski mútur?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.6.2009 kl. 16:23

2 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Framsóknarflokkurinn beitti sér, þegar hann komst í aðstöðu til, fyrir því að stofnuð var nefnd setti lög um fjármál stjórnmálaflokkana.   Hvorki VG eða Samfylking heldur Framsókn.  Ekki gera tilraun til að skrifa söguna upp á nýtt eins og þú vildir að hún væri.  Staðreyndirnar tala sínu máli.

G. Valdimar Valdemarsson, 16.6.2009 kl. 16:27

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þessi lagasetning var ósköp vandræðaleg: Þörfin var augljós og uppi voru vangaveltur hvort allt gæti verið með felldu með fjármál einkum þáverandi stjórnarflokka. Lengi vel vildu hvorki Framsóknarflokkru né Sjálfstæðisflokkur viðurkenna að nein spilling gæti hafa hreyðrað um sig í íslensku samfélagi. Davíð og Halldór básúnuðu að Ísland væri minnst spillta land í heimi, hvorki meira né minna! Mannstu eftir þessu G. Valdimar?

Undirritaður ritaði grein í Morgunblaðið um nauðsyn þess að setja skýrar reglur um fjármál flokkanna og lenti í einkennilegri ritdeilu við gjaldkera Framsóknarflokksins af því tilefni. Fyrst var borið við að engin þörf væri á svona reglum og vísaði hugmyndum um slíkt á bug.

Sjálfstæðisflokkurinn fól Framsóknarflokknum af ókunnum ástæðum að hafa frumkvæði um að setja þessar reglur áður en stjórnarandstæðan kæmi með tillögu. Farin var nokkurs konar millileið. Í stað þess að ganga alla leið voru settar fremur yfirborðslegar reglur sem betur hefði verið að hafa öllu fyllri og nákvæmari. Um þetta þingmál urðu töluverðar umræður og kom stjórnarandstæðan með breytingartillögur sem voru felldar.

Svona var frumkvæði Framsóknarflokksins - í praxís!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.6.2009 kl. 16:59

4 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Ertu ekki að hefja þig svolítið til skýjanna og skálda í eyðurnar núna?  Hvernig geta reglur um fjármál stjórnmálaflokkana gengið lengra en núverandi reglur?   Frumvarpið var unnið í samvinnu allra flokka, og ekki að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins og það ættir þú að vita.

Lagabreytingar í Framsóknarflokknum lögðu niður embætti gjaldkera um síðustu aldamót.  Eitthvað er nú að skolast til hjá þér held ég.

G. Valdimar Valdemarsson, 16.6.2009 kl. 17:13

5 Smámynd: Sigurjón

Það er ekkert til sem heitir samvizka samspillingarinnar...

Hún er algjörlega samvizku- og siðlaus...

Sigurjón, 17.6.2009 kl. 00:28

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Komdu sæll!

Í ræðu sinni um fundarstjórn forseta, taldi formaður B sig geta rætt og gagnrýnt starfsáætlun meirihlutans og ríkisstjórnarinnar og taldi slæleg vinnubrögð á ferðinni þar sem aðeins rúmur hálfur mánuður væri til boðaðara sumarþingsloka og enn væru stórmál ekki komin fram. Út af fyrir sig hægt að benda á slíkt, en formaðurinn gerði það bara ekki undir réttum lið. Sá liður heitir Störf þingsins og því misnotaði hann aðstöðu sína og út í hött að halda því fram að forseti alþingis hafi misbeitt valdi.Þá er þessi samlíking þín ósmekkleg og hvetur ekki til þess, að mikið mark sé tekið á þér!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.6.2009 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband