Er ástæða til að reka RÚV fyrir almannafé ?
11.8.2010 | 10:43
Starfsmenn RÚV eru með stofnunina í gíslingu. Hver man ekki eftir fréttastjóramálinu? Þegar setja átti mann með viðskiptavit yfir fréttastofuna þá var allt vitlaust og fram koma að starf fréttastjóra væri bara að raða mönnum á vaktir og skrifa upp á leigubílanótur og að hann þyrfti ekkert að kunna að fara með peninga. Árangurinn er 1, 1 milljarður í kostnað og fréttastofa sem alveg má missa sig.
Nú þegar handboltinn er farinn af RÚV er full ástæða til að lækka nefskattinn um amk helming það er hvort sem er ekkert eftir sem spennandi er að horfa á.
Varðandi Spaugstofuna þá man ég ekki betur en að sá þáttur hafi verið kostaður lengi vel af KB-banka og Arion banka síðar. Það hefur ekkert komið fram hverjar tekjurnar voru í formi kostunar. Ég tel miklu líklegra að vanhæfa ríkisstjórnin hafi notað tækifærið og beitt sér fyrir því að spaugstofan verði tekin af dagskrá þar sem hún þolir ekki að gert sé að henni grín.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.