Á ekki að ráðast að rót vandans !!!!
10.4.2008 | 11:19
Hversvegna er verðbólgan? Er það ekki vegna þess að gengið féll? Er það ekki vegna þess að einstaklingar, fjölskyldur og fyrirtæki búa við okurvexti? Nú er ríkissjóður á athugunarlistum sakir aðgerðarleysis og áhugaleysis á efnahagsmálum. Er ekki komin tími til að ráðast að orsökum vandans en ekki á verðbólguna sjálfa. Þú læknar ekki hjartasjúkling bara með því að setja hann á lyf, það þarf stundum aðgerð og alltaf breyttan lífsstíl með. Það sama á við um verðbólguna. Hvað þarf mörg rauð ljós og háværar aðvörunarbjöllur til að vekja þessa ríkisstjórn?
Þjóðarnauðsyn að hemja verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.