Þarf þetta að koma á óvart ?
18.6.2008 | 16:26
Það eru allir orðlausir yfir ákvörðunarfælni ríkisstjórnarinnar. Á þeim bæ er ekkert gert, hausnum stungið í sandinn og kíkt upp á tveggja vika fresti til að athuga hvort vandamálið sé ekki farið.
Getulaus forsætisráðherra verður að fara frá með sitt hafurtask.
Gengi krónunnar aldrei lægra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég held að Framsóknarmenn eigi nú að líta í eigin barm, þar sem "ekki gera neitt því þetta gæti lagast að sjálfu sér" eru stjórnunarhættir sem Davíð og Halldór tíðkuðu í heil 12 ár eða svo.
Marinó G. Njálsson, 18.6.2008 kl. 16:42
Já til dæmis þegar samdrátturinn gekk yfir 2001 og 2002 ... þá var ekkert gert varð það ekki? Veit ekki betur en að þá hafi verið gripið til ráðstafana sem komu í veg fyrir harða lendingu efnahagslífsins. Menn geta deilt um aðferðir en árangurinn er mælanlegur og sýnilegur.
G. Valdimar Valdemarsson, 18.6.2008 kl. 16:58
Eitt lítið dæmi um aðgerð sem framkvæmd var á þessum tíma og hefur ekki framkallað þá þenslu sem við búum við í dag er hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs úr 6.750.000 í 9.300.000. Aðgerð sem snéri við þáverandi þróun á húsnæðismarkaði.
G. Valdimar Valdemarsson, 19.6.2008 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.