50% dýrara ?
25.6.2008 | 11:53
Hér er verið að taka upp sama módel og Íbúðalánasjóður notar til þess að fjármagna sig. Stóri munurinn er að Kaupþing er 50% dýrari og ætlar sér 0,9% álag á sama tíma í Íbúðalánasjóði nægir 0,6% álag. Þarna munar heilum 50 prósentum. Annars er jákvætt að Kaupþing velur að fjármagna sig eftir sama módeli og Íbúðalánasjóður. Þá kemur í ljós raunverulegur styrkur Íbúðalánasjóðs og hver er ávinningur almennings af sjóðnum umfram það að þurfa að leita á náðir bankanna.
Það eru líkur á að hér sé upphafið að nýju verðstríði í fjármögnun húsnæðis. Ef að þau kjör sem bjóðast í þessu útboði verða í einhverri líkingu við það sem Íbúðalánasjóði er að bjóðast á markaði. þá verður það erfitt fyrir minni bankana og Sparisjóðina að keppa við Kaupþing, en þeir verða tilneyddir að bregðast við ætli þeir sér að taka þátt í fjármögnun íbúðahúsnæðis í framtíðinni.
Það eru augljóslega athyglisverðir tímar framundan á húsnæðismarkaði.
Kaupþing með útboð á skuldabréfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:00 | Facebook
Athugasemdir
ertu að meina að Kupþing sé að starta vitleysunni aftur eða hvað áttu við
Jón Aðalsteinn Jónsson, 25.6.2008 kl. 13:15
Já, þeir ætla sér að drepa samkeppnina núna í eitt skipti fyrir öll. Sparisjóðirnir hafa engan leik í stöðunni og stóru bankarnir takmarkað svigrúm. Eina svar Landsbankans eða Glitnis sem vit væri í, væri að sameinast erlendum banka og bjóða hér óverðtryggð lán á kjörum sem tíðkast erlendis. Það er ekkert verið að hugsa um stöðuleikan heldur er verið að berjast um hagnaðinn.
G. Valdimar Valdemarsson, 25.6.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.