áhugaverð greining en.....
8.5.2009 | 17:28
Þessi greining er áhugaverð en það vantar í hana allan samanburð. Hvernig var staðan fyrir ári síðan eða tveimur árum? Hvert var eiginfjárhlutfall heimilanna á þeim tíma?
Það væri gott innlegg í umræðuna að fá þessar upplýsingar upp á borðið. Hvað hafa þeir sem lögðu ævisparnaðinn sinn í íbúðarhúsnæði tapað miklu af sínum sparnaði á undanförnum mánuðum. Síðan mætti alveg gera samanburð á stöðu þeirra sem leggja fyrir íbúðarhúsnæði og þeirra sem tóku áhættu og settu fé í peningamarkaðssjóði.
Það er svo annar kapítuli að skoða mismunun þessara sparnaðarforma og viðbrögð stjórnvalda í ljósi jafnræðisreglu stjórnarskrár.
IFS Greining: Skuldir heimilanna 1.995 milljarðar króna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.