Hræðsluáróður
26.6.2009 | 14:36
Nú er hafinn mikill hræðsluáróður hjá ríkisstjórninni til að hræða menn til þess að samþykkja þá afarkosti sem Steingrímur J Sigfússon kallaði glæsilegan árangur fyrir örfáum vikum. Áróðurinn beinist ekki síst að stjórnarandstöðunni eins og að hún eigi að skera ríkisstjórnina úr snörunni sem hún kom sér í með því að semja af sér.
Það á að senda þjóðinni 300 - 500 milljarða króna reikning til að bjarga andliti fjármálaráðherra og samninganefndarmannanna sem hann gerði út. Þegar nefndarformaðurinn nennti þessu ekki lengur gekk hann að afakostum til að komast í sumarfrí.
Yfirlýsingar aðgerðarleysisstjórnar Samfylkingar og íhaldsins um ríkisábyrgð á IceSave skuldbindingunum hefur ekkert gildi. Svona yfirlýsing er marklaus ef hún styðst ekki við meirihluta á Alþingi og aldrei var látið á það reyna. Þeir komu því ekki í verk frekar en mörgu öðru.
Nú geysast flokksgæðingarnir fram með stórkallalegar yfirlýsingar algerlega órökstuddar og reyna að hræða þjóðina og þingmenn til fylgislags.
Ég skora á þingmenn að fylgja sannfæringu sinni í þessu máli og láta ekki hræða sig með marklausum yfirlýsingum.
Fellum frumvarpið um ríkisábyrgð.
Strandi Icesave, strandar allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
og hvað svo? Allar þjóðir heims munu klappa okkur lof í lófa og sennilega fáum við verðlaun líka.
Finnur Bárðarson, 26.6.2009 kl. 14:41
Finnur hefur greinilega keypt hræðsluáróðurinn.
Ef ábyrgðin verður felld þarf að semja upp á nýtt. Vonandi verða þá settir í samninganefndina menn sem hafa tíma, metnað og nennu til að ná árangri fyrir hönd þjóðarinnar.
G. Valdimar Valdemarsson, 26.6.2009 kl. 14:45
Sammála G. Valdimar. Skemmtileg tilbreyting ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 26.6.2009 kl. 14:51
Okkar menn eiga ekki að skera SJS niður úr snörunni, látum hann sprikkla eða skera sig niður sjálfur !
Kveðja, KPG.
Ps.:Nema Finnur Bárðarson vilji hjálpa honum ?
Kristján P. Gudmundsson, 26.6.2009 kl. 16:07
Hvernig viltu svara því sem ég segi hér? Það eru nefnilega tvö mál - annars vegar hvort við samþykkjum skuldbindinguna um að borga Icesave og hins vegar hvort við samþykkjum þessa tilteknu útfærslu....og 5.5% vextina. Menn geta verið ósammála útfærslunni með ýmsum rökum, en miðað við það sem á undan er gengið sé ég ekki hvernig eigi að hafna skuldbindingunni.
Púkinn, 26.6.2009 kl. 16:30
Púki: Eitt svar við því er að finna hér en þar kemur fram að við höfum haldið illa á málinu og lítið eða ekkert gert til að fara réttar leiðir til að leita réttar okkar í málinu.
G. Valdimar Valdemarsson, 29.6.2009 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.