Nú hefst sýningin......
28.8.2009 | 10:16
Nú þegar sér fyrir endann á IceSave málinu er fyrirsjáanleg flugeldasýning fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar. Lán til Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og fleiri aðila sem beðið hafa tilbúin til afgreiðslu í vikur og mánuði fást nú flutt til landsins.
Ég velti því fyrir mér hver var og er tilgangur fjármálaráðherra með því að hanga á þessum lánum og beita lögum um gjaldeyrishöft til að koma í veg fyrir afgreiðslu þeirra. Var það til þess að skapa pressu innanlands á að IceSave samningurinn verði afgreiddur, eða er tilgangur bara að skjóta pólitískar keilur?
Sama hvort er, þá hefur fjármálaráðherra og Seðlabanki verið Þrándur í Götu þessara lána og þannig skaðað fyrirtækin, íslenskt efnahagslíf og almenning í landinu.
Væntanleg flugeldasýning ríkisstjórnarinnar þegar lánin koma inn í hagkerfið með þeim jákvæðu áhrifum sem það hefur á atvinnustig og gengi krónunnar er kannski ástæða þess að Seðlabankinn frestar því að birta hagtölur.
Nú eru spunameistararnir farnir að verða þjóðinni dýrir þykir mér.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.