Lítiđ skref í átt ađ betra samfélagi
16.2.2010 | 12:49
Nýja Ísland
Síđustu mánuđi hefur mönnum orđiđ tíđrćtt um nýja Ísland og ţá von ađ hćgt verđi ađ endurreisa á Íslandi nýtt og betra samfélag. Haldnir hafa veriđ margir fundir og mikiđ skrafađ en ósköp fátt áţreifanlegt komiđ fram. Ţađ hefur enginn lagt í ţá vinnu ađ skilgreina nýja Ísland og hugmyndir manna um ţađ virđast frekar óljósar.
Ég held ađ vandamáliđ liggi í ţví ađ enginn veit hvar á ađ byrja. Stjórnlagaţing og persónukjör virđast í dag órafjarri og lítill vilji til ţess hjá ráđamönnum ađ breyta kerfinu. Breytt kerfi gćti veriđ ógn viđ atvinnuöryggi ţeirra sem sitja ađ kjötkötlunum í dag.
Kakan verđur ekki borđuđ í einum bita og ţađ er miklu vćnlegra til árangurs ađ taka lítil skref en ákveđin í átt ađ betra samfélagi. Skref sem ekki kosta mikil fjárútlát en bćta samfélagiđ.
Byrjum smátt
Er ţörf á ţví ađ allir íbúar höfuđborgarsvćđisins mćti í vinnu á sama tíma? Má ekki skipuleggja vinnutíma fólks á vinnustöđum međ ţeim hćtti ađ fólk sé ađ mćta t.d. á bilinu frá kl 7 til kl 10 á morgnanna.
Ţađ sparar tíma, dregur úr umferđ og álagi á gatnakerfi og fresta má dýrum framkvćmdum viđ uppbyggingu umferđarmannvirkja. Ţađ mćtti skipuleggja skólastarf t..d međ ţeim hćtti ađ börnin séu ađ byrja daginn á bilinu 8 - 10 á morgnanna eđa jafnvel 7 - 9?
Flestir skólar eru međ fleiri bekki í hverjum árgangi og ţví ćtti ađ vera hćgt ađ bjóđa upp á ákveđiđ val í ţessum efnum. Ţađ myndi bćta nýtingu húsnćđis ţar sem skólastarfiđ lengist í báđa enda.
Fjölskyldurnar hafa svo möguleika á ađ ađlaga heimilislífiđ ađ vinnutíma foreldra og auka ţannig samverustundir međ börnunum.
Ég er sannfćrđur um ađ breyting sem ţessi myndi skapa betra samfélag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.