Að vera kaþólskari en páfinn
7.9.2007 | 16:03
Hvernig getur atvinnulífið búið við svona gerræði? Ef að fyrirtæki með starfsleyfi þarf að lúta því að endurnýjun starfsleyfis fari til umsagnar í hvert skipti sem tímabundið leyfi rennur út, er þá hægt að búast við að fjárfest sé í húsakynnum búnaði og tækjum? Ef leyfið er til staðar og samþykkt á að endurnýja það, á meðan forsendur hafa ekki breyst. Nýjir íbúar í húsum í kring eða þeir sem byggt hafa upp á meðan starfssemin var til staðar eiga ekki að geta rutt þeirri starfssemi er á svæðinu út. Starfssemi á svæðinu er þekkt þegar nýir aðilar koma og þeir koma á þeim forsendum að þeir vilja vera með þeirri starfssemi sem fyrir er. Við megum ekki verða kaþólskari en páfinn í regluverkinu.
Endurnýjun starfsleyfis Laugafisks felld úr gildi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.