Mistök í hagstjórn
1.11.2007 | 11:38
Hagfræðingur hjá Seðlabankanum skrifaði langa grein í Morgunblaðið nýlega til að verja hávaxtastefnu bankans. Í þessari grein var ekki vikið orði að bindiskyldu bankanna en það er stjórntæki sem bankinn hefur yfir að ráða til að draga úr útlánagetu bankana og slá þannig á þensluna í samfélaginu. Það hefur sýnt sig að háir vextir eru ekki að skila þeim árangri sem að er stefnt í hagstjórninni. Hagfræðingar Seðlabankans skulda þjóðinni skýringu á því hversvegna þeir nota ekki bindiskylduna til að slá á þenslu í stað endalausra vaxtahækkana sem draga mátt úr heilu atvinnugreinunum. Hvernig væri nú að einhver fréttamaðurinn færi að vinna vinnuna sína og leita skýringa á því hversvegna ekki var gripið til bindiskyldunnar þegar bankarnir fóru inn á húsnæðismarkaðinn og hversvegna þetta stýritæki liggur ónotað í skúffum á Arnarhól?
Stýrivextir Seðlabankans væntanlega komir niður undir 4% 2009 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er ekkert flóknar en að reka sjávarútvegsfyrirtæki í því umhverfi sem Seðlabankinn hefur búið þeim atvinnuvegi undanfarin misseri. Ef að flækjustigið er að þvælast fyrir í bankanum verður að fá aðra menn til að stjórna á þeim bæ.
G. Valdimar Valdemarsson, 1.11.2007 kl. 12:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.