Er á stefnuskrá Framsóknar
23.4.2008 | 17:16
Eftirfarandi er úr stefnu Framsóknarflokksins og íhald soppaði á þingi sl. ár og stjórnarandstaðan var ekki til í game.
Auðlindasjóður verði stofnaður og til hans renni þær greiðslur sem greiddar eru fyrir afnot af þeim náttúruauðlindum sem eru í sameign þjóðarinnar.
Að í stjórnarskrá standi: Auðlindir Íslands utan eignalanda eru sameign íslensku þjóðarinnar. Með auðlindum er átt við nytjastofna á Íslandsmiðum, auðlindir á, í eða undir hafsbotninum utan netalaga og náttúruauðlindir í þjóðlendum.
Alþingi setji lög um auðlindasjóð. Auðlindagjald renni í auðlindasjóð. Greiðslur fyrir afnot af auðlindum í eigu eða forsjá ríkisins renni í auðlindasjóð.
Íslendingar komi sér upp þjóðarsjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.