Gjaldþrot frjálshyggjunar

Þessar hugmyndir frá ungum þingmanni Sjálfstæðisflokksins eru ekkert annað en gjaldþrot frjálshyggjunnar.   Frjálshyggjan boðar að markaðurinn leiti hagkvæmustu lausna á hverjum tíma.  Aðilar í flutningastarfssemi sem ég hef átt samtöl við fullyrða að strandflutningar séu stundaðar í miklum mæli og meira mæli en á meðan ríkið stóð í því að reka skipafélag.  Markaðurinn er nefnilega að virka og ef það er hagkvæmt að senda vöru á sjó er hún send á sjó.  En ungur þingmaður á atkvæðaveiðum ætlar sér að taka upp ríkisrekna flutningastarfssemi og neyða flutningana með einum eða öðrum hætti út á sjó.    Það mun ekki verða gert nema að til komi umtalsverðar niðurgreiðslur á sjóflutningum, eða að skattheimta á landflutninga verði aukin umtalsvert til að gera sjóflutningana hagkvæmari.   

Þegar skoðað er hvaða vörur eru fluttar um þjóðvegi landsins kemur í ljós að þar er kennir ýmissa grasa.   Dagvara í verslanir fer tæplega á sjó þar sem óhagkvæmt verður að koma við í hverri höfn og fyrir verslunina að liggja með stóra lagera á milli ferða, og að ræsa út mannskap til að taka við sendingum þegar skipin koma.

Fiskur sem fluttur er í stórum stíl fram og aftur þjóðvegina verður tæplega fluttur á sjó.  Forsenda fyrir háu fiskverði er ferskt hráefni og sjóflutningar geta bara ekki keppt við landflutninga þegar kemur að því að flytja fisk á milli markaða og vinnslu eða til útflutnings í flugi.

Olíur og bensín eru að stærstum hluta flutt á sjó í dag og síðan frá höfnum og að afgreiðslustöðvum og það breytist ekkert.

Eftir standa einstaka tilfallandi þungaflutningar, áburður, byggingarvara, hráefni og framleiðsla iðnfyrirtækja á landsbyggðinni.  Ég held að allir þessir aðilar hafi fyrir langalöngu reiknað út hagkvæmustu leið við flutninga og nýti sér hana.

Álögur á landflutninga til að neyða menn af vegunum er bein skattheimta á fyrirtæki og fólk á landsbyggðinni og væri mikil afturför, mönnum væri nær að viðurkenna orðin hlut og bregðast við með átaki í vegagerð og láta markaðinn ráða, hann á við þar sem samkeppni er til staðar og hún er til staðar í flutningum. 


mbl.is Strandsiglingar kall nútímans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skv. frjálshyggjuhugmyndum á markaðurinn að finna hagkvæmustu lausnina að því gefnu að verðmyndun sé eðlileg. Eins og staðan er núna þá er verðmyndun í flutningum ekki eðlileg því að þeir sem reka flutningabifreiðar greiða ekki til viðhalds á nauðsynlegum samgöngumannvirkjum með sama hætti og þeir sem reka flutningaskip (hafnargjöld).

Þessi tillaga er því ekki í nokkurri andstöðu við frjálshyggju.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 13:46

2 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Nei það er alveg satt, ekkert frekar en að það samrýmist ekki hörðustu frálshyggju að búa úti á landi á Íslandi.   Ef greiða ætti reiknaðan kostnað við flutninga á vegum landsins yrði ekki um neina flutninga að ræða.   Hafnargjöld fara ekki til að greiða stofnkostnað við hafnir heldur rekstur þeirra og viðhald og ef samanburðurinn á að ganga upp er þá ekki rétt að leggja fullt gjald á notknun hafna eins og á þjóðvegina?  Ergo frjálshyggjan gengur ekkert upp á Íslandi og mönnum væri nær að vera með báða fætur á jörðinni og viðurkenna það í stað þess að berjast fyrir útópískum hugmyndum sem aldrei ganga upp....    það fer bara eins fyrir þeim og kommunum.    XB- lifi framsókn.

G. Valdimar Valdemarsson, 9.5.2008 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband