Sígin grásleppa

Þegar ég hlusta á andstæðinga viðræðna við ESB minna svör þeirra mig óneitanlega á svörin sem ég fékk frá börnunum þegar ég lagði til að við hefðum signa grásleppu í kvöldmatinn.  Það kemur sko ekki til greina að þau borði þann fisk.  En þau hafa reyndar aldrei bragðað hann. 

Þetta kallast fordómar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Já, ég er sennilega líka með fordóma gagnvart Alþýðulýðveldinu Kina fyrst ég hef engan áhuga á að Ísland verði hluti af því.

Það eru ekki fordómar þegar hægt er að afla sér nægrar þekkingar fyrirfram um eitthvað og rúmlega það til þess að mynda sér skoðun á því.

Hjörtur J. Guðmundsson, 12.5.2009 kl. 10:09

2 identicon

ESB er ekki leynifélag.

Það er vel hægt að mynda sér rökstudda skoðun með eða á móti án þess að vita það nákvæmlega upp á hár hvaða sérþarfareglugerðir Ísland fær í fiskveiði- eða landbúnaðarmálum.

Þau mál eru stór en ESB snýst um ýmislegt fleira.  

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband