Ragnar Reykás hvað
14.5.2007 | 13:02
Steingrímur Joð talar um að núverandi ríkisstjórn sé lösku, lömuð að hún hafi ekki meirihluta atkvæða á bak við sig og þessvegna sé henni ekki sætt. Gott og vel, ef hann meinar nú eitthvað af því sem hann segir, hvernig dettur manninum þá í hug að bera minnihlutastjórn á borð fyrir þjóðina. Að sjálfsögðu á að mynda stjórn sem byggir á meirihluta þingmanna ef það er hægt. Hvers vegna ættu framsóknarmenn að verja stjórn með VG falli? Steingrímur sjálfur segir að það sé himin og haf milli þessra flokka. Er þá allt eins í myndinni að framsóknarmenn verji bara minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks falli?
Hafa áhuga á myndun minnihlutastjórnar í skjóli Framsóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Greinilegt er að valdaþorsti Steingríms er mikill og að hann er tilbúinn í miklar æfingar til að komast að. Líst hræðilega illa á þessa tillögu hans og að mínu mati er hún bara hjákátleg og rýrir álit mitt á Steingrími J.
Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 13:20
Mjög mikilvægt er að efnahagslífið stoppi ekki heldur a.m.k. lulli áfram.
Á undanförnum árum var hraðinn kannski of mikill og mótorinn snérist of hratt. Þá er mikil hætta að legurnar skemmist þegar ekki er hugsað um að smyrja vel og vandlega.
Síðasta ríkisstjórn tók ekkert tilllit til minnihlutans. Kosturinn við minnihlutastjórn hins vegar er einkum sá að hún þarfa ALLTAF að hafa góða samvinnu við stjórnarandstöðuna við lagasetningu og önnur störf þingsins. Í Svíþjóð og mörgum öðrum löndum er yfirleitt mjög góð reynsla af minnihlutastjórnum. Lög sem sett hafa undir þessum kringumstæðum hafa yfirleitt enst mjög vel enda hafa andstæðar ríkisstjórnir ekki séð ástæðu til að „hreinsa mistök eftir“ fyrri ríkisstjórnir. Minnihlutastjórnir eru því mjög lýðræðislegar og ekki ætti að kasta steinum að þeim sem gjarnan vilja reyna fyrir sér í þeim efnum.
Ef minnihlutastjórn mistekst ætlunarverk sitt ætti að vera létt verk að koma þeim frá.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 14.5.2007 kl. 14:09
Já, en........ hvernig dettur Steingrími Joð í hug að framsóknarmenn færu að verja hann og hans stjórn vantrausti... er ekki traust forsenda fyrir því að verja einhvern vantrausti....... bullið og skapið í Steingrími Joð er ekki til þess fallið að skapa til hans eitthvert traust... langt frá því.
G. Valdimar Valdemarsson, 14.5.2007 kl. 14:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.