told you so.....

Framsóknarmenn lögðu til þessar aðgerðir strax í byrjun apríl.    Það er búið að kosta heimilin og fyrirtækin í landinu umtalsverða fjármuni þessi bið eftir ríkisstjórninni.   Sú árátta íhaldsins að vilja Íbúðalánasjóð feigan og dauðaleit þeirra að einhverjum öðrum úrræðum í efnahagsmálum hefur verið íslensku samfélagi dýr.  

Nú kemur fram í blöðum í morgun að Landsbankinn er ósáttur við aukin umsvif Íbúðalánasjóðs, nú vinna flestir forystumenn stuttbuxnadeildar íhaldsins hjá Landsbankanum  svo að ég velti því fyrir mér hvort kemur á undan eggið eða hænan?  

Er Landsbankinn að enduróma stefnu stuttbuxnadeildarinnar eða er íhaldið að hlaupa erinda Landsbankans?

Jóhanna á hrós skilið fyrir að standa í lappirnar og verja hagsmuni almennings.  Framsóknarmenn þekkja það af eigin raun hvað ásókn frjálshyggjunnar í allt sem getur gefið þeim ríku stærri hlut af kökunni getur verið hatrömm.


mbl.is Íbúðalánasjóður til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú kannast ég við framsókn! Vonandi ertu ekki einangraður með þessa skoðun í Framsóknarlandi.

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 13:27

2 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar er vafasamar í meira lagi. Með þessu þá er ríkisstjórnin að festa í sessi meira en 10% verðbólgu. Þetta þýðir að íbúðarverð á eftir að hækka. Það fer allt á stað aftur, ég vona að hækkanirnar verði ekki eins miklar og þegar ríkisstjórnin, með framsókn innanborðs, setti fasteignarverð af stað sumarið 2004.

Það á að vera kappsmál fyrir ríkisstjórnina að draga úr verðbólgunni. Það gerir hún ekki með því að dæla enn meiri peningum út í þjóðfélagið í gegnum íbúðarlánasjóð. Nú neyðist Davíð að hækka stýrivexti, stýrivexti sem kemur mjög illa við marga hér á landi.

Ólafur Guðmundsson, 20.6.2008 kl. 13:34

3 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Ég held að það verði að skoða þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í ljósi þess að gengið var komið aftur í frjálst fall.  Ef ekkert hefði verið að gert núna hefði gengisvísitalan farið 170-180 og verðbólgan yfir 20%.    Ég tel það afskaplega hæpna ályktun hjá Ólafi hér að ofan að hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs um 2 milljónir í 20 verði til þess að húsnæðisverð á Íslandi hækki.  

Það hefur ekkert liðkast fyrir um aðgang að lánsfé til að brúa það sem uppá vantar frá 20 milljónum og t.d. upp í 30 eða 40 eins og algengt verð á húsnæði er.  Ég get því ekki komið auga á þann hækkunar hvata sem í þessum aðgerðum er fólginn. 

G. Valdimar Valdemarsson, 20.6.2008 kl. 13:55

4 Smámynd: Hlini Melsteð Jóngeirsson

Sæll

Enda er þetta hárrétt hjá þér, ef íhaldið fengi að sjá íbúðalánasjóð feigan þá er víst að staða margra heimila væru enn verri en þau eru í dag. 

Kveðja

Hlini Melsteð Jóngeirsson, 20.6.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband