Svikin vara ?

Kjósendur bundu miklar vonir við kosningarnar í vor.  Vonirnar fólust fyrst og fremst  í því að flokkarnir myndu endurnýja sig og taka upp ný og betri vinnubrögð eftir kosningar.    Núverandi stjórnarflokkar virðast ekki hafa skilið kall tímans. 

Endurnýjunin er sáralítil.  Hjá VG bættust við þingmenn og einn datt út, endurnýjunin fólst í því að  borgarfulltrúi kom inn í stað dæmalaus umhverfisráðherra.  Hjá Samfylkingu er nánast boðið upp á sama gamla tóbakið.  Þar hafa núna spunameistarar flokksins undanfarinn ár leist af hólmi nokkra litlausa þingmenn.

Vinnubrögðin virðast eiga að vera þau sömu og þróast hafa hér undanfarin ár og menn voru almennt sammála um í vetur að væru gengin sér til húðar.   Það er enginn vilji til að styrkja Alþingi og taka upp alvöru þrískiptingu valdsins.  Það var bara notað í stefnuskrárnar en er gleymt og grafið nú þegar stríðið geisar í þingflokkunum um það hverjir fá ráðherrastóla og hverjir ekki.

Utanþingsráðherrann Gylfi Magnússon tekur virkan þátt í þessu stríði og ástundar vinnubrögð valdhroka og yfirgangs til að ganga sem mest í augun á forystu stjórnarflokkana.  Hann talar niður til fólks og sakar það nánast um heimsku og að núverandi forsendubrestur lána sé þeim rétt mátulegur og lántakendur geti sjálfum sér um kennt.  

Annað form af valdhroka frá viðskiptaráðherra er boðun hans á stofnun embættis talsmanns skuldara.   Nú hefur talsmaður neytenda sem heyrir undir ráðherrann sinnt því hlutverki af stakri prýði. Þá boðar ráðherrann að nú þurfi að skipta honum út fyrir talsmann skuldara.  Væri ekki nær að styrkja embætti talsmanns neytenda með aukinni fjárveitingu ?

Þetta minnir óneitanlega óþyrmilega á það þegar Davíð Oddsson lagði niður þjóðahagsstofnum.  Það á að skjóta sendiboðann vegna þess að skilaboðin eru óþægileg.

Fjölmiðlum er nú kennt um að hafa kynnt öll snilldar úrræðin sem komin eru fram til að aðstoða skuldsett heimili þessa lands.  Það er ekkert að hjá okkur, þetta er fjölmiðlunum að kenna.  Ég held að ég hafi nánast heyrt sömu rök hjá Davíð Oddssyni fyrir örfáum árum.

Annað dæmi um vinnubrögðin er að stjórnarflokkarnir boðuðu báðir í aðdraganda kosninga breytingar á sjávarútvegsstefnunni og gerðu út á þá stefnu í atkvæðaveiðum.  Nú á engu að breyta enda vissu allir með opin augu að það er óráðlegt að ráðast í umfangsmiklar breytingar á umhverfi undirstöðuatvinnuvegar í því árferði sem nú ríkir í efnahagsmálunum.

Ómerkilegasta kosningabragð síðustu kosningabaráttu var svo tilkynning Sjávarútvegsráðherra um handfæraveiðar.  Tilkynning sem nú hefur verið afturkölluð og sögð aðeins hafa verið send út til að kynna málið en að engu verði breytt.

Er þetta Nýja Ísland í dag ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Hvaða íslendingar trúa á það LÝÐSKRUM sem ávalt kemur frá SAMSPILLINGUNNI...?  Ég hélt að "Fagra Ísland" hefði verið nógu skýr skilaboð, svo kom "Skjaldborgin" - svo var það "Velferðabrúin" & "Vinna & velferð" - þessi flokkur er & hefur því miður bara í langan tíma verið "froðusnakk & innihaldslaust blaður...."

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 6.5.2009 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband