Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hvað leysir utanþingsstjórn?
27.1.2009 | 10:20
Þó að hér sæti utanþingsstjórn hefði hún ekkert löggjafarvald og Alþingi sæti eftir sem áður. Ríkistjórnin væri algjörlega upp á Alþingi komin með að koma í gegn nauðsynlegum lagabreytingum og væri í stöðugum samningaviðræðum við þingflokka til að tryggja málum framgang.
Er það ástandið sem Neyðarstjórn kvenna er að kalla eftir ?
![]() |
Áskorun frá Neyðarstjórn kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þessu fólki treystandi ?
23.1.2009 | 10:08
Samfylkingin er í ríkisstjórn og situr sem fastast. Þetta gerist þrátt fyrir að varaformaðurinn í fjarveru formanns talar fyrir kosningum og tekur þátt í fundi þar sem samþykkt eru stjórnarslit. Varaformaðurinn mætir svo í viðtal eftir fundinn og tekur undir allt sem á fundinum fór fram, en tekur jafnframt fram að hann beri fullt traust til ríkisstjórnarinnar. Er hérna komin fyrirmyndin að Ragnari Reykás ?
Svo er það snillingurinn aðstoðarmaður Utanríkisráðherra sem gat fullyrt að forsætisráðherra hefði misskilið formann Samfylkingarinnar í símtali sem aðstoðarmaðurinn heyrði ekki. Hún leiðrétti og fullyrti til hægri og vinstri, og nú er komið í ljós að formaður Samfylkingarinnar misskyldi símtalið líka á sama hátt og forsætisráðherra.
Það er munur að hafa svona snilling sem aðstoðarmann sem veit miklu betur en maður sjálfur hvað maður segir og meinar. Ingibjörg Sólrún verður að læra að meta snilldina og spyrja aðstoðarmanninn oftar út í það hvernig ber að túlka orð og símtöl formanns Samfylkingarinnar.
Nema að aðstoðarmaðurinn hafi misnotað aðstöðu sýna og skrökvað að samstarfsfólki sýnu til að fullnægja einhverri sýniþörf? Ef svo er hlýtur ráðherrann að senda aðstoðarmanninn í fríið langa.
Veruleikaflótti
21.1.2009 | 08:38
Ég held að þessi hugmynd sé nú ekki hugsuð til enda. Stjórnmálamenn bjóða sig fram til þess að sitja á þingi eða í sveitarstjórn í 4 ár. Á einu kjörtímabili þarf að taka bæði vinsælar og óvinsælar ákvarðanir. Óvinsælar en nauðsynlegar ákvarðanir verða seint teknar ef almenningur hefur það vald að skipta bara út stjórnmálamönnum ef ákvarðanirnar falla ekki í kramið.
Við getum allt eins farið í beint lýðræði eins og að taka upp ákvæði um undirskriftasafnanir til að fá fram kosningar. Þessi tillaga er týpísk fyrir þó skoðanakannana pólitík sem Samfylkingin fylgir, hversvegna samþykktu þessir 10 þingmenn ekki vantraustið á ríkisstjórnina. Þeir sitja á Alþingi í umboði þjóðarinnar og allt sem þarf er að hlusta á þjóðina. Það á ekki að þurfa undirskriftasöfnun heldur bara hæfa Alþingismenn sem fylgja sannfæringu sinni og hlusta á þjóðina, í stað þess að láta flokksagann stýra öllum sýnum ákvörðunum.
Þingmenn vinna eyð að stjórnarskránni, nú ætti að spyrja hvað hefur breyst síðan allir 10 flutningsmennirnir felldu vantraustið. Og hversvegna flytja þeir ekki í umboði þjóðarinnar vantraust á ríkisstjórnina ? Þetta frumvarp er sýndarmennska og blöff og því fylgir engin sannfæring og ég held reyndar að nær væri að samþykkja breytingu á lögum sem bannar þingrof. Þá væru mótmælendur í dag að benda á lausnir eða annarskonar ríkisstjórn sem þeir treysta betur í stað þess að krefjast bara kosninga.
Ég skora á þingmenn að taka frumvörp á dagsskrá sem hafa verið flutt og bíða afgreiðslu, eins og til dæmis frumvarp um yfirstjórn Seðlabanka sem Höskuldur Þórhallsson er flutningsmaður að. Þannig svara þeir kalli almennings í stað þess að slá ryki í augu fólks með svona sýndarmennsku.
![]() |
Meirihluti geti krafist kosninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þar er hann réttnefndur
20.1.2009 | 15:34
Nú þegar Framsóknarflokkurinn hefur svarað kalli tímans virðist Samfylkingin hafa farið á límingunni. Það lýsir fullkominni panikk að kalla til fundar með viku fyrirvara nk. laugardag til þess að leita að stefnu flokksins. Ekki er grasrótin spurð um stefnuna og áherslurnar.
Líklega er það auglýsingastofa framkvæmdastjórans sem er tilbúin með nýja stefnu sem kynna á fyrir grasrótinni. Það er í takt við fyrri vinnubrögð í þessu kosningabandalagi. Núna á svo líka að halda Evrópufundi og segja flokksmönnum hvað þeim eigi að finnast um Evrópumálin, fyrirvara og samningsmarkmið. Ekki spyrja þá heldur eru dregnir á flot fjöldi fyrirlesara til að segja almennum flokksmönnum hvaða skoðun þeir eigi að hafa.
Mitt í þessu þegar hluti Samfylkingar finnur til ábyrgðar og reynir að galdra fram einhverja stefnu fyrir annars stefnulausan flokk boðar varaþingmaður og þingflokksformaður til fundar um stjórnarsamstarfið. Þar á sennilega að framkalla stjórnarslit að kratískri fyrirmynd, en margir muna það þegar kratar hlupu frá ábyrgð haustið 1979. Nú á að endurtaka leikinn.
Varaþingmaðurinn sem fer á kreik í fjarveru og veikindum formanns og boðar fund um stjórnarsamstarfið heitir Mörður og það er greinilega réttnefni.
Þegar kötturinn fer að heimann.....
18.1.2009 | 03:25
Samfylkingin boðar framtíðarþing eftir 6 daga til að leita að stefnunni. Formaður flokksins er erlendis að leita sér lækninga og þá fara mýsnar á kreik og komast að því að það er engin stefna til í flokknum. Þá er boðað þing... þannig er það í öðrum flokkum og þá hljótum við að gera það líka ... hugsa mýsnar. En mýsnar þær halda að í fundarsalnum á borðunum sé tilbúin stefna frá þeim sem leigði þeim salinn. Þeir eru svo vanir því að auglýsingastofan segi þeim hvernig stefnan á að vera að þeir gleyma því að til þings er boðað með fyrirvara og það er undirbúið og grasrótin fær að tala og segja sína skoðun á stefnunni.. en mýsnar.. þær þurfa að redda málunum núna .. áður en kötturinn kemur heim og rekur þær aftur inn í holurnar.
Ert þú lesandi góður.. maður eða mús ?
Galdrabrennur samtímans
5.1.2009 | 15:53
Undanfarið hafa fjölmiðlamenn og þjóðþekktir einstaklingar farið mikinn í opinberri umræðu í leit að sökudólgum. Orðfæri, ásakanir og áburður þessa fólks á hendur nafngreindum einstaklingum er ekki til mikillar fyrirmyndar.
Ég efa það ekki að það má finna dæmi um lögbrot og vafasama gjörninga margra einstaklinga í aðdraganda bankahrunsins. Einnig má eflaust benda á einstaklinga og stofnanir sem sváfu á verðinum og flutu sofandi að feigðarósi.
Það gefur samt ekki skotleyfi á alla þá sem komu að málum á einn eða annan hátt. Stjórnvöld hafa loksins sett af stað rannsókn á aðdraganda bankahrunsins og endurskoðunarfyrirtæki hafa skilað skýrslum um starfssemi bankanna í aðdragandanum. Allt þetta er mikilvægt til að tryggja að allar upplýsingar liggi fyrir og við getum dregið þá til ábyrgðar sem fóru framúr sér og brutu lögin og ekki síst til að læra af þeim mistökum sem gerð voru.
Íslendingar hafa hingað til talið sig búa í réttarríki þar sem allir eru saklausir þar til sekt er sönnuð en síðustu vikur hafa sjálfskipaður postular almennings brugðið sér í dómarahlutverk og útdeila sekt til hægri og vinstri án þess að þurfa að færa nokkur rök fyrir máli sínu.
Nú er svo komið að það berast fréttir t.d. innan úr bönkunum að þar þori sig enginn að hreyfa af ótta við að lenda á galdrabrennum einstakra fjölmiðlamanna. Ákvörðunarfælni í bönkunum er farin að skaða verulega hagsmuni fyrirtækja sem þangað leita eftir úrlausn sinna mála og tefur eðlilegar aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að bjarga verðmætum og tryggja vinnu.
Aðhald fjölmiðla er nauðsynlegt í samfélaginu en það er vandfarið með það vald sem fjölmiðlar hafa og því mikilvægt að vandað sé til verka og ekki farið fram af offorsi og með órökstuddar dylgjur og fullyrðingar. Það skaðar málstaðin og veldur einstaklingum og fjölskyldum þeirra ónauðsynlegum þjáningum. Nægur er vandinn samt.
Krafan um skýrar og einfaldar reglur þar sem allir sitji við sama borð er sjálfsögð og eins krafan um að allt sé rannsakað og uppi á borðum um aðdraganda bankahrunsins. Þar eiga fjölmiðlar að veita aðhald og koma með ábendingar í stað þess að setja sig í dómarasæti og fara fram með illa dulbúnar hótanir og órökstuddar fullyrðingar.
Tilraun til að flækja umræðuna?
5.1.2009 | 13:38
![]() |
Hætt að reikna út gengisvísitölu krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarna eru þeir í réttu ljósi
31.12.2008 | 10:19
Hagsmunir neytenda skipta bara engu máli og heldur ekki hagsmunir þeirra sem eiga í fyrirtækinu með þeim. Hringurinn (lesist Baugur) kemur í fyrsta sæti og aðrir hagsmunir þar á eftir.
hafi þeir skömm fyrir.
![]() |
Sagt upp og samningi rift |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Með allt niðrum sig
15.12.2008 | 20:15
![]() |
Upptaka af útskýringum ritstjóra DV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Steinsvaf á vaktinni
15.12.2008 | 20:04
Og nú á að kenna bara einhverjum öðrum um. Hversvegna var bankamálaráðherra ekki hafður með á fundum með Seðlabankastjóra? Var honum ekki treystandi Ingibjörg? Hversvegna var pukrast með ástand mála í heilt ár án þess að segja þjóðinni frá? Var verið að leita að sökudólg í stað þess að ráðast á vandan?
Það er aumt að kenna öðrum um og þú ættir að skammast þín.
![]() |
Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |