Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Krúttkynslóðin kaus rangt
6.10.2008 | 20:23
Hún kaus krútt í staðin fyrir árangur áfram. Það var fróðlegt að heyra Óla Björn Kárason ræða um að afnema lög um umhverfismat til þess að koma hjólunum af stað.
Framsókn boðaði áframhaldandi nýtingu náttúruauðlinda í sátt við náttúruna, og ekki gleyma þvþi að maðurinn er hluti af náttúrunni. Sú stefna hlaut ekki brautargengi en það er sú lausn sem menn kalla núna eftir. Það tók 16 mánuði áður en hörðustu íhaldsmenn sáu ljósið og núna er lausnarorðið að afturkalla úrskurð umhverfisráðherra um umhverfismat. Það er ljóst að afrek Samfylkingarinnar á 16 mánaða stjórnarsetu eru óábyrg fjárlög og skemmdarverk á eðlilegum framgangsmáta framkvæmda við atvinnuuppbyggingu á Íslandi.
![]() |
Atvinnulífið fái súrefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórnin fór bara heima að sofa.
6.10.2008 | 13:48
Geir og ríkisstjórnin hljóp frá miðju verki í gærkvöldi og lýsti því yfir að ekkert lægi á. Núna er neyðarástand vegna þess að ekki var tilkynnt um neinar aðgerðir fyrir opnum markaða í morgun.
Staðan skrifast alfarið á Geir Haarde og ríkisstjórnina. Allir Seðlabankar Evrópu hafa gripið til aðgerða fyrir langa löngu og ríkisstjórnir hafa undanfarnar vikur verið að grípa til aðgerða og stórir pakkar voru kynntir víðsvegar um Evrópu í morgun.
Á Íslandi lá ekkert á. Bankarnir voru með lausnina og ríkisstjórnin trúði þeim fór bara heima að sofa. Eða var það þannig að menn áttu eftir að koma einhverjum fjármunum undan og bjarga nokkrum flokksgæðingum áður en hægt væri að loka alveg fyrir öll viðskipti?
Geir skuldar þjóðinni skýringar.
![]() |
Alvarlegri en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýja ríkisstjórn
6.10.2008 | 12:11
Aðkallandi er að ganga til verka og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir þjóðargjaldþrot. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki tilbúin til að leita allra leiða til lausna.
Lausnin er að Samfylking og Framsókn myndi minnihlutastjórn sem VG verji falli. Ný Stjórn grípi til nauðsynlegra ráðstafana til að rétta við efnahagsmálin. M.a. að skipt verði um yfirstjórn í Seðlabanka, sótt verði um aðild að EB og myntbandalaginu og óskað eftir stöðugleikasamningi við
Seðlabanka Evrópu. Greitt verði úr flækjunni með umhverfismat vegna álvers við Bakka og tryggt að hægt verði að ráðast í nauðsynlega rannsóknir á Þeystareykjum næsta sumar og þorskvótinn verði aukinn í 155 þúsund lestir.
Eflaust er þessi upptalning ekki tæmandi til að koma böndum á ástandið eftir aðgerðarleysi íhaldsins. Þegar búið er að koma böndum á ástandið þarf að boða til kosninga og kjósa til Alþingis og gefa þjóðinni kost á að gefa forystu Sjálfstæðisflokksins einkunn fyrir frammistöðuna undanfarna mánuði.
![]() |
Skýrist á næstu klukkustundum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Geir er vandamálið
6.10.2008 | 12:04
Takið Geir úr umferð
6.10.2008 | 12:02
Enn er Geir Hilmar Haarde meira upptekin af hagsmunum Sjálfstæðisflokksins en af hagsmunum þjóðarinnar. Það á ekki að skoða allar leiðir til bjargar þjóðarbúinu vegna þess að sumar leiðirnar gæru verið erfiðar Flokknum. Flokkurinn er jú heilagur og hann gengur fyrir.
Þetta er þekkt úr mannkynssögunni þegar trúarbrögðin eru tekin fram yfir þjóðríkin. Þetta er sú staða sem við horfum á í dag. Virðingin fyrir Flokknum nær meira að segja í systurflokkinn Samfylkinguna, en flokkarnir byggja jú á sömu hugmyndafræði, eru regnhlífasamtök fólks með eitt markmið, að halda völdum hvað sem það kostar.
Það er reyndar ekki að undra að þessir flokkar fari sýnu fram án þess að leiða hugann eitt augnablik að hagsmunum þjóðarinnar. Áróður fjölmiðlana hefur tryggt þeim enn um 30% fylgi hvorum og þess vegna engin ástæða til þess að hlusta frekar á þjóðina.
Nánast allir, nema þeir sem eru innvígðir og hafa tekið blessun í Valhöll, hafa bent á gjaldþrot peningamálastefnunnar og nauðsyn þess að koma með nýja forystu í Seðlabankann. Systurflokkurinn Samfylking hefur ymprað á þessu en það virðist samt skipta minna máli en að halda áfram málþófinu og tilraunum til að hanga í stólunum.
Geir náði botninum á tveggja mánaða fresti frá áramótum. síðast í gærkvöldi, en núna er allt að fara til andskotans. Aðilar sem sátu með forsætisráðherra á fundum um helgina eru orðlausir, reiðir og sárir, en Geir hann verður ekki var við neinn ágreining.
Á hverju er maðurinn ?
Tölvupóstur að norðan
6.10.2008 | 10:32
|
Geir gefst upp
6.10.2008 | 00:07
Enn og aftur kemur Geir Haarde og kennir alþjóða fjármálakreppu um, en talar í sama orðinu um að ríkisstjórnir og seðlabankar um allan heim séu að grípa til aðgerða. En á Íslandi nei, Davíð kóngur og Geir ráðalausi þeir gera ekki neitt. Ég lýsi fullri ábyrgð á Geir Hilmar Haarde ef gengið fellur áfram á morgun. Þá er ljóst að þetta "skot" í gengið fer beint út í verðlagið og leggst á lánin mín og allra annarra sem búa við íslenska krónu og verðtryggingu.
Geir lýsir því yfir að innistæður almennings séu tryggar, hann áttar sig ekki á því að fólk hefur enga trú á honum og því sem hann segir. Hann sagði þjóðinni ósatt alla síðustu helgi og getur ekki reiknað með að þjóðin trúi honum núna.
Ábyrgðin er Flokksins, Geirs og Davíðs og það er tímabært að fólkið á landinu standi upp og láti ekki bjóða sér þessi vinnubrögð lengur. Hvaða hagsmuni eru þeir að vernda? Ekki okkar fólksins í landinu.
![]() |
Ekki þörf á aðgerðapakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Geir lifir í draumi
5.10.2008 | 18:26
Ef verkalýðshreyfing á að samþykkja framlengingu kjarasamninga verður Geir og íhaldið að láta af draumnum um íslenska krónu. Íhaldið notar krónuna til þess að skerða hér lífskjör þegar því hentar og færa fjármuni milli stétta og kynslóða. Sá tími er liðinn og nú þarf hagstjórn sem byggir á velferð allra í samfélaginu. Fyrsta skrefið í þá átt er ný mynt sem veitir ný tækifæri til að skapa stöðugleika til lengri tíma. Evra er ekki töfralausn eins og sumir Samfylkingarmenn halda, en hún er tækifæri til að stýra efnahagsmálum í það horf að hægt sé að byggja hér upp og horfa fram á vegin til lengri tíma en vikna og mánaða.
![]() |
Æskilegt að framlengja kjarasamninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bankaútibú bjóða ávísanir vegna skorts á lausafé.
3.10.2008 | 15:14
Vandamál dagsins er að almenningur trúir frekar á dósent úr Háskólanum en á forsætisráðherra og Seðlabankastjóra. Það er kannski ekki að undra, mennirnir lugu að þjóðinni alla síðustu helgi milli þess að þeir keyrðu glottandi þessa 300 metra á milli stjórnarráðs og Seðlabanka. Það tekur ár og daga að ávinna sér traust, en bara eina helgi að missa það.
Þjóðin treystir þessum mönnum ekki lengur. Þeir eru orðnir hluti af efnahagsvandum og verða að fara frá.
![]() |
Boðar aðgerðir til að auka lausafé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver er óábyrgur ?????????
3.10.2008 | 14:59
Vandamál dagsins er að almenningur trúir frekar á dósent úr Háskólanum en á forsætisráðherra og Seðlabankastjóra. Það er kannski ekki að undra, mennirnir lugu að þjóðinni alla síðustu helgi milli þess að þeir keyrðu glottandi þessa 300 metra á milli stjórnarráðs og Seðlabanka.
![]() |
Ummæli Gylfa Magnússonar óábyrg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |