Kalla sendiherran heim... strax

Samfylkingin verður að fara að sýna það að hagsmunir íslendinga hafi eitthvað að segja þegar þeir taka ákvarðanir og semja við aðrar þjóðir.   Þó að Brown sé í systurflokki Samfylkingarinnar duga engin vettlingatök núna.   Nú fá þeir tækifæri til að bæta örlítið fyrir allt klúðrið í ICESAVE málinu í vetur.

Össur ertu maður eða mús ?


mbl.is Hafa fengið nóg af Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert.. hvernig væri nú að blaðamenn reiknuðu svolítið.

Ef heildarskuldir Íslenskra aðila eru 3100 milljarðar um næstu áramót ætti að vera hægt að finna út með nokkurri nákvæmni hvað Seðlabankinn gerir ráð fyrir að erlendir aðilar afskrifi af skuldum gömlu bankanna.

Menn m.a. viðskiptaráðherra hafa talað um að gera megi ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs verði um 1000 milljarðar og þá eru eftir 2100 milljarðar.  Nú veit ég ekki hverjar erlendar skuldir sveitarfélaganna, Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og fleiri aðila eru.  En ég geri ráð fyrir því að þær hlaupi einhverjum hundruðum milljarða.  Gefum okkur að þær séu 600 milljarðar þá eru skuldir annarra m.a. bankanna um 1500 milljarðar. 

Þær voru við hrunið ef ég man rétt 15000 milljarðar, hér er því um 90% afskrift að ræða en svo má ekki afskrifa kröfur á fólkið í landinu til að leiðrétta stöðu þess fyrir hruninu.

Þessar tölur mínar eru án ábyrgðar, en ég skora á töluglögga menn að setjast nú yfir þetta og reikna dæmið til enda.


mbl.is 3100 milljarða skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aum er sú útgerð

Ég skrapp í sveitina seinnipartinn í gær sem er kannski ekki í frásögur færandi.  En þar varð ég vitni að því hvernig komið er fyrir ríkissjóði í dag.

Ég fylgdist með varðskipi dóla sér á milli skerjanna okkar og skreppa í land svona hér og þar.  Það er ansi aum útgerð sem ekki á fyrir kosti handa áhöfninni og sendir hana í stað þess milli skerja til að ræna hreiður bænda.

Þetta er ljótur ósiður og margar frásagnir til af þessum siðum gæslunnar.  Ég batt vonir við að þetta væri liðin tíð, en svo virðist ekki vera.

Þetta er kannski nýtt form af skattheimtu dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra ?

 


Svikin vara ?

Kjósendur bundu miklar vonir við kosningarnar í vor.  Vonirnar fólust fyrst og fremst  í því að flokkarnir myndu endurnýja sig og taka upp ný og betri vinnubrögð eftir kosningar.    Núverandi stjórnarflokkar virðast ekki hafa skilið kall tímans. 

Endurnýjunin er sáralítil.  Hjá VG bættust við þingmenn og einn datt út, endurnýjunin fólst í því að  borgarfulltrúi kom inn í stað dæmalaus umhverfisráðherra.  Hjá Samfylkingu er nánast boðið upp á sama gamla tóbakið.  Þar hafa núna spunameistarar flokksins undanfarinn ár leist af hólmi nokkra litlausa þingmenn.

Vinnubrögðin virðast eiga að vera þau sömu og þróast hafa hér undanfarin ár og menn voru almennt sammála um í vetur að væru gengin sér til húðar.   Það er enginn vilji til að styrkja Alþingi og taka upp alvöru þrískiptingu valdsins.  Það var bara notað í stefnuskrárnar en er gleymt og grafið nú þegar stríðið geisar í þingflokkunum um það hverjir fá ráðherrastóla og hverjir ekki.

Utanþingsráðherrann Gylfi Magnússon tekur virkan þátt í þessu stríði og ástundar vinnubrögð valdhroka og yfirgangs til að ganga sem mest í augun á forystu stjórnarflokkana.  Hann talar niður til fólks og sakar það nánast um heimsku og að núverandi forsendubrestur lána sé þeim rétt mátulegur og lántakendur geti sjálfum sér um kennt.  

Annað form af valdhroka frá viðskiptaráðherra er boðun hans á stofnun embættis talsmanns skuldara.   Nú hefur talsmaður neytenda sem heyrir undir ráðherrann sinnt því hlutverki af stakri prýði. Þá boðar ráðherrann að nú þurfi að skipta honum út fyrir talsmann skuldara.  Væri ekki nær að styrkja embætti talsmanns neytenda með aukinni fjárveitingu ?

Þetta minnir óneitanlega óþyrmilega á það þegar Davíð Oddsson lagði niður þjóðahagsstofnum.  Það á að skjóta sendiboðann vegna þess að skilaboðin eru óþægileg.

Fjölmiðlum er nú kennt um að hafa kynnt öll snilldar úrræðin sem komin eru fram til að aðstoða skuldsett heimili þessa lands.  Það er ekkert að hjá okkur, þetta er fjölmiðlunum að kenna.  Ég held að ég hafi nánast heyrt sömu rök hjá Davíð Oddssyni fyrir örfáum árum.

Annað dæmi um vinnubrögðin er að stjórnarflokkarnir boðuðu báðir í aðdraganda kosninga breytingar á sjávarútvegsstefnunni og gerðu út á þá stefnu í atkvæðaveiðum.  Nú á engu að breyta enda vissu allir með opin augu að það er óráðlegt að ráðast í umfangsmiklar breytingar á umhverfi undirstöðuatvinnuvegar í því árferði sem nú ríkir í efnahagsmálunum.

Ómerkilegasta kosningabragð síðustu kosningabaráttu var svo tilkynning Sjávarútvegsráðherra um handfæraveiðar.  Tilkynning sem nú hefur verið afturkölluð og sögð aðeins hafa verið send út til að kynna málið en að engu verði breytt.

Er þetta Nýja Ísland í dag ?


Uppgjöf Samfylkingar...

Það er nánast hægt að fullyrða að þessi lausn þýðir að ekki verði sótt um aðild að ESB á næsta kjörtímabili.   Þó svo að Framsóknarmenn hafi samþykkt að standa að aðild að ESB kæmust þeir í þá aðstöðu jafngildir það ekki að þeir séu tilbúnir að veita opið umboð til flokks eins og Samfylkingarinnar til að leiða málið til lykta.   

Viðbrögð Samfylkingarinnar við samþykkt Framsóknarflokksins í vetur voru á þann veg að það er ekki hægt að treysta þeim til að ná þeim samningsmarkmiðum fram sem flokkurinn setti sér.

Það væri því mikill ábyrgðarhluti að veita Samfylkingunni umboð til að ganga frá aðildarsamningi.

Þetta er hrein uppgjöf hjá Jóhönnu ef satt er.


mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþol íhaldsins

Það er skondið að fylgjast með óþoli íhaldsmanna þessa dagana.  Bloggarar sem enn halda tryggð við íhaldið halda ekki vatni yfir stjórnarmyndunarviðræðum. 

Flokkarnir tveir hafa báðir stefnu og nú þarf að sjóða saman úr henni eina sameiginlega stefnu sem á að halda í 4 ár.   Það er ekki auðvelt og hver dagur sem líður sýnir svo ekki verði um villst að það var þörf fyrir VG í pólitíska litrófinu.  Ef ekki væri það auðvelt mál að setja saman stjórnarsáttmála.

Flokkarnir Samfylking og VG eru greinilega ekki eins líkir og sumir hafa haldið fram, sérstaklega á vinstri vængnum.  Það hlýtur að vera haf og himinn á milli og mikil vinna í undirnefndum við að koma sér saman um trúverðuga stefnu. 

Ólafur Ragnar forseti hefur greinilega markað nýja stefnu við stjórnarmyndun þar sem menn fá þann tíma sem þarf til að ná saman.  Vandvirkni og trúverðug stefna er sett í forgang.  Það er því ofur eðlilegt að formaður annars stjórnarflokksins hafi valið að eyða helginni á blakmóti og ráðherrar taka sér langþráð helgarleyfi.   Þjóðin og vandamál hennar fara ekkert,  nú skal vandað til verka.

Ég bíð spenntur eftir niðurstöðunni, hvaða stefna verður ofan á?


Ekki bara til kynningar......

Hér var á ferðinni ein ómerkilegasta kosningabrella Íslandssögunar.   Nú er talað um að þetta sé bara hugmynd til kynningar, en sú staðreynd týndist alveg í málflutningi ráðherrans þegar málið var kynnt.

 


mbl.is Margir hafa áhuga á strandveiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvönduð stjórnsýsla

Er ráðherra ekki skylt að leita umsagnar hagsmunaaðila þegar hann tekur svona ákvarðanir.  Dýralæknirinn sem eitt sinn var sjávarútvegsráðherra samþykkti svipaða breytingu og olli æðarbændum á Íslandi stórkostlegum skaða þar sem fuglar í hundruða tali fóru í net einstakra grásleppukarla.

 Reglur um upphaf og lok grásleppuvertíðar voru ekki settar bara út í bláinn á sínum tíma, fyrir þeim voru gildar ástæður.

Er ráðherrann bara afgreiðslumaður fyrir frekustu hagsmunasamtökin?  Steingrímur maður verður að vinna heimavinnuna sína áður en svona ákvarðanir eru teknar.


mbl.is Viku bætt við grásleppuvertíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velferðarbrú Samfylkingarinnar - A Bridge to nowhere

Velferdarbruin

Draumórar

VG heldur ennþá að störf verði búin til úr engu.   Þeir hafa ekki náð þeirri einföldu staðreynd að fjármagn er afl þeirra hluta sem gera skal.   Hvernig á að finna fjármagn til að skapa störf í matvælaframleiðslunni?   Á að leifa erlenda fjárfestingu í útgerð og fiskvinnslu?

Er veruleikaflóttinn svo mikill að þeir hafa ekki enn áttað sig á að vandamál efnahagslífsins er skortur á fjármagni og mikil skuldsetning.  Á að nota þrjá milljarðanna sem fást með skattpíningu á millitekjur til þess að stofna hér ríkisútgerðir?

Bændur á Íslandi eru skuldum vafðir og eiga ekki fjármagn á lausu til að fara í uppbyggingu þó þeir fegnir vildu.  Þar að auki tekur mörg ár að auka framleiðslu á kjöti og mjólk, það gerist ekki með því að klippa á borða eða ýta á takka.

Milliliðir í landbúnaði eru flestir gjaldþrota eða við gjaldþrot svo að varla búa þeir til störf án þess að til komi fjármagn.   Er ekki kominn tími til að VG komi niður á jörðina til okkar hinna og fari að tala af raunsæi um leiðir út úr vandanaum og hætti að láta sig dreyma.  Draumalandið er ekkert annað en draumóralandið.


mbl.is Atli: Atvinnuleysið er þjóðarböl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband