Embættismenn draga pólitíkusa að landi
8.8.2008 | 15:04
Fyrirhyggja framsóknarmann á meðan þeir sátu við stjórn og áttu stjórnarformann Landsvirkjunar er núna að verða til þess að skapa viðspyrnu í efnahagslífinu. Samfylkingin og Íhaldið eru ófær um að ná saman um nokkrar aðgerðir og því verða embættismenn að dusta rykið af Búðarhálsvirkjun og taka frumkvæðið af pólitíkusum.
Gott hjá þeim.
![]() |
Álversrekstur tryggður til 2037 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrirhyggja framsóknarmanna
8.8.2008 | 14:52
Það sýnir sig þarna hvað það er nú gott að hafa haft framsóknarmenn við völd sem tryggðu að það var til ein ónotuð virkjun sem hilluvara inn á kontór hjá Landsvirkjun. Framsóknarmenn hafa alltaf lagt á það áherslu að afla áður en eytt er og til þess þarf öflugt atvinnulíf. Núna þegar við stjórn eru flokkar sem ekki koma sér saman um neitt nema það að vera ósamála er nú gott að vita til þess að á tímum fyrri ríkisstjórnar var hugsað fram í tímann.
Nú vakna eflaust upp allskyns draugar sem telja að póstkortasala og yfirfullir átroðnir ferðamannastaðir séu vænlegri til atvinnuuppbyggingar, en vonandi er þjóðin farin að átta sig á loddaraskapnum.
![]() |
Byrjað á Búðarhálsvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er hægt að láta bjóða sér þetta?
8.8.2008 | 14:24
Olíuverðið er búið að vera að lækka og lækka og þeir dragast á eftir hálfa leið með sýndarlækkun og svo korter eftir að gengið breytist er hækkað. Olíufélögin ætla ekki að taka neitt á sig í þeim þrengingum sem núna ganga yfir í efnahagslífinu. Þau eru með belti og axlabönd og hafa engan áhuga á að deila kjörum með viðskiptavinum sínum.
Við viðskiptavinirnir skuldum þeim ekkert, hundsum N1, hættum að versla þar allir sem einn þangað til þessari ósvífni lýkur. Ég keyri frekar bensínlaus en að skipta aftur við þá og voru þeir þó mitt olíufélag þar til fyrir 4 vikum.
![]() |
Eldsneyti hækkar í verði hjá N1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fúll á móti
7.8.2008 | 14:41
Enn missa Vinstri grænir sig í að vera bara fúlir á móti. Hér er lagt til að fara í framkvæmd á tímum atvinnuleysis. Framkvæmd sem er umhverfisvæn þar sem sjónmengun og hávaðamengun af umferð hverfur af yfirborði þegar umferðin er komin í stokk.
VG vill sennilega frekar en að þessum fjármunum sé varið í að gera miðbæinn vistlegri og meira aðlaðandi verði beðið með framkvæmdir og aurarnir síðan notaðir í félagslega aðstoð til atvinnulausra einhvertíma á næsta ári.
Þetta er skýrt dæmi um flokk sem sést ekki fyrir í því að vera fúll á móti við hvert tækifæri án þess að koma með nokkra vitræna hugmynd í staðinn.
![]() |
Vilja Geirsgötu og Mýrargötu ekki í stokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stoltur af aðgerðarleysinu
5.8.2008 | 15:02
Nú stígur forsætisráðherra fram og er stoltur af aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. Hann telur að efnahagslífið sé að aðlagast nýju umhverfi og komið hafi ljós hvað íslenskt efnahagslíf er sveigjanlegt að fljótt að aðlaga sig að nýjum raunveruleika.
Aðlögun efnahagslífsins fer þannig fram þessa dagana að lítil fyrirtæki, sprotafyrirtækin sem stjórnmálamenn tala um á tyllidögum berjast fyrir lífi sínu og spáð er að allt að 1.000 fyrirtæki verði gjaldþrota á árinu.
Aðlögunin fer líka þannig fram að ungum fjölskyldum, fólki nýkomnu úr námi með börn á framfæri eru sendir himinháir reikningar vegna húsnæðis. Með aðgerðarleysi sínu er ríkisstjórnin að staðfesta að þetta fólk eigi að greiða fyrir niðursveiflu efnahagslífsins. Ríkisstjórn íhalds og jafnaðarmanna ætlar ekki að gera neitt til þess að jafna byrðarnar. Afmörkuðum þjóðfélagshópum er sendur himinn hár reikningur á meðan aðrir fitna.
Þetta er íhaldssemi, en það er alveg nýtt fyrir mér að þetta sé jafnaðarmennska. Enda gleymdi jafnaðarmannaflokkurinn öllum sínum hugsjónum um leið og hann settist í stólanna.
Samstaðan í minnihlutanum er á undanhaldi
25.7.2008 | 13:17
Það liggur nú fyrir að eftir fáránleg fagnaðarlæti Samfylkingar og VG korteri eftir að úrskurður Skipulagsstofnunar lá fyrir er engin málefnalega samstaða í minnihlutanum í borgarstjórn um orkumál og atvinnumál. Atvinnumál eiga eftir að vera stóru málin í haust þegar atvinnulífinu fer að blæða undan aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar.
Þá er mikilvægt að góðar arðbærar hugmyndir um atvinnusköpun liggi ekki sem hilluvara í gíslingu einnota borgarstjóra. Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins er mikil og völdin dýru verði keypt ef ekki verður leitast við að koma Bitruvirkjun í gegnum borgarstjórn. Þá verða það fyrirtækin og fjölskyldurnar í landinu sem fá reikninginn fyrir einnota borgarstjórann.
Það verður svo fróðlegt að sjá Sjálfstæðisflokkinn ganga til kosninga eftir 2 ár búna að vera í gíslingu einnota borgarstjórans í 2 ár.
![]() |
Segir ljóst að Birtuvirkjun hafi verð slegin af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
En sumir telja sig ríki í ríkinu
23.7.2008 | 14:19
Að dæma sig úr leik í umræðunni
23.7.2008 | 11:46
Umhverfissinnar og náttúruverndarfólk hefur ítrekað dæmt sig úr leik í umræðu um náttúruvernd. Það má fullyrða að framganga þessara aðila einmitt vegna vegagerðar á þessum þremur stöðum, um Gjábakka, Teigskóg og við Dettifoss hafi átt stóran þátt í því.
Vegagerðin hefur farið með vegina í gegnum lögformlegt ferli og niðurstaða er fengin, en það er eins og að ef niðurstaðan er ekki samkvæmt rétttrúnaði umhverfissinna sé ástæðulaust að una við hana.
Það er synd að helstu talsmenn náttúrunnar á Íslandi hafa haga málflutningi sýnum með þeim hætti að fjöldi fólks er hætt að hlusta eftir þeirra skoðunum, og forðast að hafa við þá samráð um nokkurn hlut þar sem það virðist hvort sem er alveg tilgangslaust.
Vonandi eiga eftir að veljast málefnalegri einstaklingar til forystu í samtökum um náttúruvernd, einstaklingar sem hægt er að ræða málin við og komast að skynsamlegri niðurstöðu. Ég tel að þessi skotgrafahernaður sem tíðkast í dag væri ekki til staðar væri jafnvel búið að finna málamiðlun um vegstæði sem allir væru sáttir við í einhverjum af þessum þremur tilfellum.
![]() |
Sakar samgönguráðherra um skilningsleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Maður líttu þér nær
22.7.2008 | 13:36
Björn Bjarnason skýtur sig laglega í fótinn í dagbókarpistli 21.07.2008 á vefsíðu sinni í dag. (sjá hér) Þar segir Björn m.a.
"Seðlabankastjórinn líkir sem sé Írlandi, Spáni og Portúgal við Missouri, Kaliforníu og Texas í Bandaríkjunum og segir bandaríska seðlabankann aldrei mundu haga ákvörðunum sínum með hagsmuni þessara ríkja innan Bandaríkjanna að leiðarljósi - hið sama eigi við evrópska seðlabankann, hann verði að hafa háleitari markmið en huga að hagsmunum einstakra þjóðríkja.
Útlendingastofnun - ekkert samræmi í afgreiðslum.
7.7.2008 | 13:13
Nú hefur Útlendingastofnun gefið út yfirlýsingar í þessu máli sem eru í einu orði sagt hlægilegar. Það þekkja allir sem hafa átt eitthvað saman við þá stofnun að sælda að afgreiðsla erinda fer frekar eftir því á hverjum þú lendir, eða í hvernig skapi viðkomandi er, eða hverja þú þekkir, en einhverjum samræmdum reglum.
Er ekki krafa dagsins í dag sú að Ríkisendurskoðun geri á stofnunni úttekt. Úttekt þar sem farið er í saumana á erindum til stofnunarinnar og hún láti rökstyðja málsmeðferð og afgreiðslu. Ég hef heyrt af mýmörgum dæmum um mismunandi afgreiðslur, mismunandi körfur um upplýsingar og eyðublöð sem þarf að skila. Flýtiafgreiðslum sem sumum standa til boða, og öðrum ekki. Ég hef heyrt um fólk sem átti í baráttu við stofnunina í marga mánuði, síðan var þeim bent á að tala við mann úti í bæ sem þekkti til og þá var erindið afgreitt á tveimur dögum.
Þeim sem ég hef rætt við um Útlendingastofnun ber saman um að þarna sé eitthvað mikið að.
Krafan er:
1. Paul Ramses heim og tryggjum honum sanngjarna málsmeðferð.
2. Gerum úttekt á stofnunni og komum hlutunum í lag svo að svona harmleikir endurtaki sig ekki
![]() |
Óvissuástand hjá Paul Ramses |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |